Sælir hugarar

Um daginn datt mér allt í einu í hug að prufa að gera gamla gítarinn minn upp. Ég á Epiphone SG sem mig langar að gera eitthvað skemmtilegt við. Mig vantar nýjan háls, pickupa og pickguard.

Spurningin er semsagt sú:

Hvað heitir aftur síðan sem selur svona gítara í pörtum? Minnir að maður gæti sett saman gítarinn sinn á þessari síðu og síðan fengið allt saman sent heim að dyrum. Mig minnir að búðin heiti “w”-eitthvað.

Mig vantar líka hjálp um hvernig pickupa ég eigi að fá mér. Mega ekki vera of dýrir og verða að vera humbuckerar!

takk takk!