Sælt veri fólkið.

Ég hef víst misst af miklu sem hefur farið hér fram undanfarna daga vegna vinnu og annarra hluta. En það í athygli mína að Gíslinn hafi eytt út korkum sem höfðu víst fjallað um mig.

Mér skilst að það væri um það að ég væri að fara að hætta sem stjórnandi á huga vegna eiturlyfjanotkunar eða eitthvað álíka. Ég sá ekki þessa korka en þeir sem sáu þá vita þá eflaust meira um hvað málið snýst.

Ég vildi bara hrekja það á brott, það er víst búið að banna notandann sem sendi þetta inn. Og aldrei á ævi minni hef ég snert eiturlyf og mun aldrei gera. Og ég vildi bara benda ykkur á að næst þegar þið sjáið og ef þið sjáið svona eitthvað að hunsa það bara og taka því ekki alvarlega. Því alltaf eða nánast alltaf eru þetta aumkunarverðir smákrakkar sem hafa ekkert annað við tímann sinn að gera en að gera lítið úr öðrum og koma af stað lygasögum.

P.S. Ég plana ekki á að hætta sem stjórnandi bráðlega.

Takk fyrir mig.

Kv. Hlynu
…djók