Jæja, smá spurning.. :)

Ég á Fender kassagítar, sem ég er búin að eiga í tæp tvö ár, og hann er farinn að vera hálfasnalegur bara..

Þegar ég er að spila þarna í kringum 12 band, þá fer að heyrast hálfgert ískur =/
Get ekki beint lýst hljóðinu, en vona að einhverjir hérna kannist við þetta.

Mér var bæði sagt að hálsinn gæti verið skakkur eða böndin þarna væri farin að vera e-ð léleg..
Ég spurði meirasegja uppí Hljóðfærahúsi, en gaurinn þar virtist ekkert vita..

Einhverjir sem gætu sagt mér hvað þetta gæti verið? Ég er búin að fara með hann einu sinni í “viðgerð”, en hann kom eiginlega alveg eins til baka.. =/