Væri einhver til í að kaupa af mér Fender magnara?
Ég á góðann Stage 100 sem er í eins ástandi og þegar ég fékk hann. Hann er 100w, með fullt af effectum s.s. tremolo, delay og margt fleira og síðan er fullt af mismunandi reverbi líka. Footswitch fylgir líka með.
Frábær magnari í alla staði, öflugur og margslunginn en þó er hann ekki alveg bestur í það sem ég er að spila. Ég myndi ímynda mér að hann myndi standa sig frábærlega í öllu öðru en Death metal…
Fékk hann í fermingargjöf frá Þorvaldi Bjarna (frændi minn) beint úr kassanum fyrir svona 2-3 árum síðan. Þá kostaði hann 70.000kr í Hljóðfærahúsinu.
Ef þú hefur áhuga, hvað værirðu til í að borga fyrir svona? Ég tek það enn einu sinni fram að hann er alveg frábær magnari í frábæru standi.