Já kæru huganotendur, hér hef ég til sölu ágætis gítar, hann er af gerðinni Epiphone The Dot.

Þessi gítar var framleiddur 2003 og það er nýbúið að yfirfara hann og stilla brúnna og setja hann upp af fagmanni (það var gert í lok Mars og hann hefur verið lítið notaður síðan þá).

Gítarinn er staðsettur í Reykjavík og hann er í frábæru standi, hann er svartur á litinn með chrome litiðu hardware-i. Með gítarnum fylgir hörð taska frá Epiphone.

Gítarinn með töskunni kostar um 85.000 kr hjá Rín

Fyrir frekkari upplýsingar er hægt að sjá þetta:
- http://www.epiphone.com/default.asp?ProductID=4&CollectionID=1
- http://www.harmony-central.com/Guitar/Data4/Epiphone/Dot-1.html


Myndir af gítarnum má sjá hér:
- http://img.photobucket.com/albums/v708/Gislinn1234/136-3673_IMG.jpg
- http://img.photobucket.com/albums/v708/Gislinn1234/136-3675_IMG.jpg

Myndirnar eru smá úr fókus en fyrir áhuga sama þá er það bara endilega að koma og fá að prufa og sjá gítarinn með berum augum.

Eins og áður kom framm er gítarinn í frábæru standi, eina sem er að er að það eru örfáar fínar rispur aftan á gítarnum.

Verð hugmynd: 53.000 kr (Hægt að semja innan skinsamlegra marka)

Ég veit vel að það er hægt að fá þennan gítar í gegnum Music123.com til landsins með hjálp shopusa.is á 50.000 kr en til viðbótar við það verð þyrfti töskuna og minn gítar er ný yfirfarinn af fagmanni eins og áður kom framm.

Ef áhugi er fyrir hendi er fólk vinsamlegast beðið um að hafa samband hér á huga eða að senda e-mail á gisli.steinn@gmail.com