Já, það er nú þannig að mig hefur alltaf langað til að læra á gítar. Og svo núna um daginn gerðist það að fékk ég gítar lánaðan til þess að læra á.

Málið er bara að ég veit ekkert hvað ég á að gera.

Þess vegna var ég að vonast til þess að það væri einhver snillingur hérna sem gæti bent mér á einhverja góða síðu sem ég gæti nýtt mér til að læra gripin.

Ég hef lært á annað hljóðfæri, en þegar kemur að gíturum þá veit ég ekkert hvað ég er að gera. Þannig að öll ráð eru vel þegin :)