Vantar þig ekki að losna við gamla gítarinn sem er búinn að safna ryki á afviknum stað síðan þú keyptir þér þennan nýja og fína sem þú rétt lagðir frá þér til að lesa þessa auglýsingu? Jú það held ég nú.

Mig vantar sem ódýrastan gítar sem fyrst. Málið er að mig dauðlangar að pússa kvikindið upp og mála hann uppá nýtt og dúlla aðeins við hann *til að geta látið hann hanga uppá vegg meðan ég spila á Jacksoninn*.

Ég er ekki að velta fyrir mér merkjum eða neinu slíku, bara að verðið sé ekki yfir 10.000 kalli..

endilega látið mig vita - ég er staðsettur í Grímsnesinu *út á landi þ.e*

kv.