Langaði bara að vekja athygli ykkar á því að óvenju fáar myndir hafa verið að koma inn og það er alltaf leiðinlegt þegar það þarf að bíða lengi á milli myndana eða þá leyfa bara einni og einni að koma í einu.

Af þessu tilefni hef ég ákveðið að hækka kvótann úr einni í tvær myndir sem þið megið senda inn í senn á hverjum 24 klst.

Endilega sendið inn fleirri myndir!

Svo langaði mig líka að nota tækifærið til að spyrja ykkur hvort þið viljið meiri myndir af hljóðfæraleikurum eða þá bara af hljóðfærum?
Því ef þið viljið fleirri myndir af hljóðfæraleikurum (sem ég hefði ekkert á móti að sjá) þá endilega sendiði þær inn!

Kveðja,
Morgoth
…djók