Rokkhljómsveitin Diagon óskar eftir söngvara og hljómborðsleikara. Hægt er að nálgast demo á www.diagon-music.com og www.myspace.com/diagonband. Við erum þrír 21 og 22 ára drengir og höfum spilað saman í þrjú ár. Upptökur eru langt komnar á fyrstu plötu sveitarinnar og stefnt er á útgáfu á þessu ári. Viljum fá sem flesta í prufu og demoin á síðunni ættu að gefa einhverja mynd af því sem við gerum. Helstu áhrifavaldar eru hljómsveitir eins og Smashing Pumpkins, Tool, The Mars Volta, Jeff Buckley, Muse, Silverchair og svo margar miklu fleiri. Söngvarinn þarf í aðalatriðum að toppa það sem þið heyrið á upptökunum en eins og áður sagði viljum við fá sem flesta í prufu svo endilega hafið samband á haukurisfeld@hotmail.com eða s.8463117 ef þið hafið áhuga.