..Lestu þá þetta:

Hljómsveit á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir trommara á aldrinum ca. 20-25. Erum sem stendur fjórir, tvítugur leadgítaristi, 23ja ára rhythmagítarleikari og bassaleikari, og 24 ára söngvari. Við erum að spila rokk í ákafari kantinum, jafnvel að gæla aðeins við metal af gamla skólanum.
Æfingar 3svar í viku, á mánudags-, miðvikudags- og föstudagskvöldum í fínu húsnæði undir bílasölu uppi á Höfða.
Ég á einhverjar upptökur hérna á tölvunni, varla hægt að kalla þær demó, því þetta er bara rhythmagítarinn, en þetta gefur einhvern forsmekk af því efni sem við erum að vinna með.

Svara hugapósti og tölvupósti á bjornkrb@internet.is. Fyrrgreint tölvupóstfang virkar líka á MSN ef menn vilja ræða þetta af einhverri alvöru.