Hér er ég að selja 14“ sneril frá fyrirtækinu Verve sem ég keypti í Ágúst sl. og 14” Paiste 502 crash sem var keyptur rétt fyrir það.

http://www.fabiani-guitars.de/image/drums/cymbals/paiste/502_crsh.jpg
http://www.music123.com/Verve-Snare-Drum-Kit-i122144.music


Þetta eru semsagt gripirnir nema að ég held að crashinn á myndinni sé 16“ en ekki 14” en svona lítur hann allaveganna út sirka.

Þetta hljómar bæði mjög vel og eina ástæðan fyrir sölu er að mig vantar pening og ég er bassaleikari og hef lítið sem ekkert að gera við þetta. Einnig er þetta bæði í toppstandi, sér varla á skinninu á snerlinum og sér alls ekki mikið á crashinum, rétt svo blekið (stafirnir á honum) byrjað að renna til eftir notkun annars er hann í fullkomnu standi.
Á snerlinum er svo statíf fyrir disk eins og sjá má á myndinni, líka æfingaplatti sem fylgir með og statíf fyrir snerilinn.

Fyrir þetta tvennt vill ég fá 10.000 kall saman sem er flott verð held ég bara fyrir svona góðan og lítið notaðan sneril og crash.

Ég er í Hafnarfirði svo að skutla honum á höfuðborgarsvæðið ætti að vera lítið mál en einnig er póstkrafa möguleiki ef eitthvað er.
Vinsamlegast svarið mér hér eða á zindrix5@hotmail.com
It's dolemite baby!!!