Hefur einhver reynslu af þessum gítar eða vitiði eitthvað um hann?

Ég er búinn að lesa dóma um hann á netinu og hann fær alltaf 5 stjörnur og allir segja að hann sé betri en Gibson Les Paul Custom þrátt fyrir að Epiphoninn kosti 70.000kr. fluttur inn en Gibsoninn eitthvað í kringum 200.000kr. (held ég)
Fyrir utan það finnst mér þetta fallegasti gítar sem að ég hef séð.


Endilega segið ykkar skoðun og segjið mér allt sem þið vitið um hann.