Sælir hugarar!

Ég er að pæla í að búa mér til Theremin! Fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það í rauninni kassi með loftneti á og loftnetið sendir út bylgjur sem nema hluti sem koma nálægt því t.d. hendur og gefur frá sér hljóð (því nær sem höndin er þeim mun hærri er tónninn sem það gefur frá sér). Svo “hljóðfæri” voru oft notuð í svona gömlum sci-fi myndum og það kannast örugglega flestir við þetta þegar þeir heyra það. Getið lesið um þetta hérna:

http://www.thereminworld.com

En spurningin er:

Hefur einhver búið svona til og getur einhver hjálpað mér að komast í gang. Ég hef enga reynslu af logsuðu og einhverju svona rafmagnstilfæringum og veseni. Svo að öll hjálp væri vel þegin!

takk takk!