Sælt veri fólkið !
Þannig er mál með vexti að ég var að skipta um pikköppa í gítarnum mínum, var að setja EMG-81 og 85 í hann.

Ég er suddalega ánægður með þá fyrir utan eitt að þegar ég er með Metal-Zone effektinn minn(BOSS MT-2) í sambandi þá kemur alveg mega svona ískur, en þegar ég nota overdrive-ið á magnaranum þá kemur alls ekki neitt og ekki heldur þegar ég er með Super-Overdrive effektinn minn.

Þá er spurningin hvort þetta sé ekki alveg örugglega eitthvað að effektinum eða hvort pikköpparnir séu eitthvað klikkaðir!?

Vinsamlegast engin skítköst og mig sárvantar að vita hvernig hægt er að laga þetta !!!!!!!!
“I think my mask of sanity is about to slip”