Hvernig væri nú að setja upp FAQ (Frequently Asked Questions) kubb hér á hugi.is/hljodfaeri. Er mjög algengt að lesa sömu spurningarnar kanski nokkrum sinnum í viku..
mætti endinlega endurflokka korkana hérna í leiðinni

ég myndi mæla með að hafa

Óskast/Til Sölu (segir sig sjálft)
Hjálp (segir sig sjálft)
Hljómsveitir (þar sem hægt er að óska eftir/auglýsa meðlimum og æfingarhúsnæðum, og hugsanlega tónleika líka)
Almennt (fyrir annað. t.d. álit á græjum og ýmis skemtinlegur fróðnítur)

Ég skal mas. bjóða mig fram til að reyna að halda eitthvað utanum FAQ Kubbinn ef engin annar er til í það (þó ég mæli kanski frekar með að einhver annar sem er mjög virkur hérna sjái um þetta)

Allir þeir sem eru samþykkir hugmynd minni (eða hafa betri tillögur) láti í sér heyra
Bassadót: FBass BN5 & MusicMan Bongo5 -> Line6 Relay G50 -> Ampeg PF500 -> Ampeg PF210HF