Ég er að leita að nýjum magnara. Hann verður að vera lampi, má vera bæði combo eða head. Ef einhver á head þá leita ég einnig að cabineti, helst 2 X 12", en get þó skoðað eitthvað stærra ef það er á góðu verði.

Magnarinn verður að vera allavega 40W. Hann verður að vera með FX loop, en þarf ekki að hafa neinna innbyggða effecta (reverb, chorus, delay. Einnig verður hann að vera í góðu ástandi og mest 10 ára gamall. Hann verður að vera með evrópskt straumkerfi (vil ekki standa í straumbreytis veseni eða einhverju svoleiðis).

Hann verður að vera með almennilegu overdrievi en þarf samt að vera með ágæta clean rás.

Hægt er að hafa samband við hérna á huga, símanúmer, e-mail og þess háttar fást í gegn um hugapóst.