Ég ætlaði bara að athuga það hvort einhver hérna hefur prófað þessa gripi. Þeir fást frekar ódýrt í hljóðfærahúsinu og fá mjög góða dóma.
Þeir eru að vísu smíðaðir í Kóreu en eru sagðir gefa þeim Amerísku ekkert eftir.

Ég bý sjálfur á Akureyri og get því ekki skroppið og prófað þá en það væri gaman að heyra ykkar álit á þeim.

Hérna er svo gripurinn: http://www.fender.com/products/search.php?partno=0265102541
Kveðja… Grautur