Line 6 magnarinn minn af gerð Spider2 er nú til sölu. Ég keypti hann fyrir rúmu ári í hljóðfærahúsinu á rétt tæpar 50 þúsund krónur. Hann er í toppformi og lítur út eins og nýr.

Magnarinn hentar vel í allar tegundir tónlistar; allt frá ljúfum djasstónum til skaðræðisópa við grimmdarlegan undirleik. Geysilegur kraftur býr í þessari annars ljúfu græju og nægir líklega til að fella fjölbýlishús á fullum styrk.

Hann er falur fyrir 35.000.

Meiri upplýsingar fást á stalin7@gmail.com eða í síma 6915712.