Ég sendi inn kork hérna fyrir nokkru síðan þar sem ég spurðist fyrir um hvort fólk vissi eitthvað um að gera háls á gítar “scalloped”. Ég fékk góða hjálp þaðan og hófst handa við að gera þetta á Apollo gítarinn minn, ég er búinn að gera þetta og núna þarf ég hjálp með annað.

Ég ætla að skipta um pickuppa og er að spá í Seymour Duncan pickuppum en hef ekki hugmynd um hvernig pickuppa ég ætti að fá mér. Gítarinn er bara venjulegur Stratocaster eftirlíking og ég er að leita eftir einhverjum góðum pickuppum á ekki of miklu verði.

Einnig var ég að spá í að skipta um brúnna, en veit einhver hvar maður getur aflað sér upplýsinga um svona brýr?

Og að lokum var ég að spá í að skipta um tuner-ana á hausnum á gítarnum, ef einhver veit hvar svoleiðis er selt þá væri gott að fá að vita.

Ég þakka bara fyrir mig fyrirfram, takk, takk.
…djók