Ég er með Ibanez gítar sem að mig er farið að langa til að bæta aðeins við og er ég að pæla í að setja nýja pickup-a í hann. Ég er aðalega að pæla í EMG pickup-um og er þar efst á lista EMG 81 þó að ég hafi persónulega ekki prufað þá.

Allavega þá var ég að pæla hvernig fólki er að finnast best að setja upp pickup-a. Bara lead style pickup-a eða lead + rythmn pickup-a?

Svo er ég líka að pæla hvað er sniðgt að setja í gítarinn minn þar sem að ég er með eitt humbucker stæði og tvö single coil þar fyrir ofan?

Allavega þá langar mig að breyta honum í góðan lead gítar með flottu og massífu sándi.

P.s. Ef að ég er að fara með einhverja algjöra steypu hérna þá er bara að leiðrétta mig eða að lesa á milli línanna, ég þekki nefnilega ekkert of mikið til pickup-a.