Ég var að spá í að kaupa mér Marshall AVT50 magnara, og ég var að skoða hann á www.gak.co.uk og þar kostar hann 263€ = ca. 21 þúsund. Málið er að hann kostar 60. þúsund í Rín. Og ég var að spá í þar sem þessi gak verslun sendir ekki til Íslands(allavega svo ég viti) þá var ég að spá í hvort einhver af ykkur vissi um einhverja evrópska netverslun þar sem ég gæti keypt svona magnara ódýrt og flutt hingað inn. Ég veit að sendingarkostnaður verður soldið mikill, en ég bara vil ekki borga þetta rándýra verð hjá Rín. Hefur einhver af ykkur lausn á þessu rosalega vandamáli mínu? Hvaða tillögur sem er… =)