Gítartónninn á Appetite for Destruction plötu Guns ‘n’ Roses er af mörgum talinn vera hinn fullkomni rokk tónn. Það hefur verið óljóst hvaða magnara Slash notaði á þessari plötu (Marshall Silver Jubilee línan var ekki komin á markaðinn) og hafa ýmsar getgátur verið uppi. Þó er vitað að Slash glataði magnaranum fljótlega eftir að platan var tekin upp. Ég rakst á ansi góða grein þar sem sett er fram rökstudd kenning um hvaða magnara Slash notaði. Þetta er mjög skemmtileg lesning fyrir Marshall áhugamenn. Hér er slóðin:

http://s4.invisionfree.com/Marshall_Law/index.php?showtopic=423