ENN OG AFTUR!

Já þannig er mál með vexti að okkur í hljómsveitinni vantar trommara. Er búið að vanta það lengi, og erum að verða alveg brjálaðir á því.

Alltaf þegar við erum við það að verða komnir með trommara og þeir ætla að fara að mæta guggna þeir og bulla eitthvað um að þetta eigi ekki eftir að ganga upp vegna þess að þeir fái ekki far eða eitthvað álíka heimskulegt.

Þess vegna bið ég ykkur trommara endilega að hafa samband við mig ef þið hafið áhuga á að komast í hljómsveit.

Erum allir á 16. aldursári og því væri gott ef trommarinn væri 14-16 ára gamall.

Spilum Heavy Metal, aðallega þó Metallicacover í augnablikinu, þó við höfum engan trommara.

Höfum æfingaaðstöðu og erum allir nokkuð færir á hljóðfærin. Ég sjálfur spila á gítar. Við erum allir í vesturbæ kópavogs.

Endilega sendu mér E-mail (eða adda mér á MSN (það væri náttúrulega best)) >> jeg_er_numer_eitt@hotmail.com

Við erum allir ágætis gaurar :)