Jæja, fékk í gær AAX Stage Performance cymbalasettið mitt sem ég pantaði af Ebay. Þetta er splunkunýtt og var keypt af Ebay búð MassMusic.net, splunkunýtt í pakkanum á 379$ með sendingarkostnaði innan BNA. Venjulega kostar þetta 500$+

Vildi bara hvetja fólk til að skoða Ebay líka þegar það er að versla hljóðfæri af netinu, mjög oft sem svona tilboð eru í gangi hjá þessum stóru tónlistarbúðum.

Annars þá hljóma diskarnir frábærlega, 14“ hattar, 16” crash og 20" ride…ég næstum græt af gleði í hvert sinn sem ég spila! :)