Ég er að hugsa um að kaupa mér Lampamagnara núna í vor og var að pæla hvað væri sniðugast að kaupa…
Við erum þá að tala um að ég spili í hljómsveit sem spilar Heavy/Black/Death metal … Aðallega þá eins og Death (hljómsveitin, dööhh..) og í þá áttina, svo ég vil fá einhvern með feeeeitu gaini og einnig góðu clean soundi.

Mig langar mjög mikið í ENGL og Diezel, en þeir eru náttúrulega ekki fáanlegir á Íslandi og ég er enginn god damn milljóner, og hef þar af leiðandi alls ekkert efni á að flytja þannig græju inn til landsins þú skilur…

Getur einhver þarna úti hjálpað mér félagar?
Bara svona svo ég geti haft langann tíma til að kynna mér þetta allt saman og skoða, svo ég verði alveg pottþéttur og góður þegar stóra stundin rennur upp.

Kv, Quadratic.