Hummm… Já…. Er að spá í smá gítarkaupum, er búinn að vera með sama gítarinn í þessi 4-5 ár sem ég hef spilað á gítar. En vandamálið er að ég hef ekki mikið vit á gíturum, hef ekki verið mikið að prufa gítara hjá öðrum gítarspilurum vegna hættu á gítarsmiti og óþarfar peningaeyðslu, en núna er gítarinn minn orðinn frekar gamall og lélegur og kominn tími til að endurnýja smá, en þar sem klínkið í buddunni er frekar lítið þá hef ég verið að spá í Fender gíturunum, þá helst Fender Stratocaster, hvað segiði, eru þetta bara ekki hinir sæmulegustu gítarar ?


http://images.misupply.com/products/original/Fender/0133800506600.jpg