Ég keypti nýverið magnara hjá Rín, sem reyndist vera gallaður. Í stað þess að vera að tefja málið og senda hann í viðgerð létu þeir mig hafa annan alveg nýjan úr kassanum. Þetta kalla ég fábæra þjónustu og til fyrirmyndar. Magnarinn er annars eins sá “magnaðri” sem ég hef kynnst en þetta er lampamagnari frá Marshall DSL-401. Hvíti Stratokasterinn minn elskar hann! Ég næ þeim ekki í sundur.