Nú er ég einn af þeim sem bara hreinlega geta ekki spilað með eyrnatappa vegna þess að þeir brengla tónheyrnina að mínu mati og vill svo skemmtilega til að ég er í frekar lád hljómsveit. Svo sá ég eyrnatappa á www.music123.com sem eiga víst að bæta úr þessu og var svona að velta fyrir mér hvort að það væri hægt að fá svona einhverstaðar á landinu?

Önnur vara sem ég hef verið að spá í hvort sé til hérna er Dunlop Heil Talk Box?