Ég pantaði gítartösku hjá music123.com á netinu fyrir um 1 og hálfum mánuði og er ekki enn búinn að fá hana! Reyndar er ekki búið að rukka mig um hana en hún á samt að vera komin fyrir löngu. Núna þarf ég að hlaupa með gítarinn allsberan inn í gítarskólann þar sem ég er að læra því taskan er ekki komin. Ástæðan fyrir því að ég kaupi hana bara ekki á Íslandi er sú að hún er bara ekki til því þetta er Dimebag Darrell gítar og er ansi skemmtilegur í útliti. Vona að hún fari að skila sér…