Eftir að hafa verið að skoða heimasíðu Orange magnara verð ég að segja að þetta líta út fyrir að vera flottir og góðir magnarar. En þar sem ég bý á Akureyri get ég ekki hoppað út í Tónastöð og skoðað þá. Því bið ég þá sem eitthvað vita um þessa magnara, hvaða magnarar fást í tónabúðinni og hvað þeir kosta að láta mig vita!
Þetta eru svona magnararnir sem mér líst best á:

AD30HTC
AD30R
AD30TC

Rockerverb 100
Rockerverb 50
Rockerverb 50 Combo

og svo með hausunum þyrfti nottla líka cabinet..
þannig að endilega gefið mér upplýsingar um verð og svona!
Kveðja… Grautur