Til sölu er Premier Cabria settið mitt. Það er í silver sparkle lit, og í fusion stærðunum 10x8, 12x9, 14x12 (á löppum) og 20x16. Settið er einstaklega vel með farið og sér ekki á því.
Þess má geta að það hefur aldrei farið úr húsi.

Með fylgir allt sem þarf, tveir boom standar, hi-hat standur, og pedall. Cymbalar fylgja líka með, þeir eru af gerðinni Solar, og eru eftirfarandi: 16“ Crash, 14” Hi-hats og 20" ride.

Það eina sem þarf að gera er að fara heim, skella settinu upp og byrja að jamma ;)