Sælt veri fólkið. Ég er hér að selja þrjá frábæra gítareffecta. Allir effectarnir eru í frábæru ástandi og hljóma og virka gjörsamlega frábærlega. Um ræðir:

Danelectro FabTone.
Þetta er distortion effect sem er með meira distortion en nokkuð annað sem ég hef heyrt. Nær alveg þvílíkum metal hljóm á borð við Tool og Metallica. Hljómar til að mynda mun betur en Boss Metalzone nokkurn tíma. Einnig virkar hann alveg frábærlega í samblandi við kannski reverb og delay sem svona post rock effect (ég notaði hann einmitt í þessum tilgangi).
Ásett verð er 6.500.

Electro Harmonix Small Stone Phaser.
Besti Phaserinn í bransanum. Alveg gjörsamlega frábært sándandi effect. Mjög svo mikill radiohead fílingur og/eða mars volta. Enda eru bæði Omar Rodriguez og Jonny Greenwood notendur small stone, ásamt ótrúlega mörgum fleirum.
Þessi fæst á 10.000

síðast en síst er til sölu:
Ibanez FL-9
Ibanez hefur nýlega gert reissue af þessum sögufræga effect, og fæst reissueið á einhverjar 18.000 krónur. En þetta er upprunalega útgáfan takk fyrir og er einfaldlega best sándandi flanger sem hefur verið nokkrun tíman gerður. Hið fullkomna Flanger sánd. Hann er í frábæru ástandi eins og allir hinir effectarnir sem eru til sölu.
FL-9 fæst á 12.000 krónur.

Ég ábyrgist allt sem ég er að selja, þannig að ef þú ert ekki ánægður með fjárfestinguna, þá er lítið mál að skila henni innan 10 daga. Ég hef selt og keypt alveg ótrúlegt magn af effectum og allir sem ég hef stundað viðskipti við eru mjög sáttir við það sem þeir hafa verslað. Ég er t.d. með 100% feedback á www.ebay.com.

Ef þú hefur áhuga á þessum effectum, þá skaltu senda mér e-mail á finnur@nfmh.is eða bara skilaboð á huga.is

kveðja