Svo er mál með vexti að ég ætla kannski að fjárfesta í Line 6 Spider II 212 150W magnara. Það sem ég er að spá í er hvort það sé ekki hægt að nota þessi venjulegu stompbox við hann? Eða verður maður að notast við Line 6 vörur einungis? Ég á t.d. Digitech Metal Master sem ég er helvíti ánægður með og væri gaman að prófa hann í gegnum Spiderinn.