Er með Washburn Dimebag Darrel signature model dime 332 til sölu eða til skipta hvort sem fólk hefur áhuga á. Gítarinn er u.þ.b. að vera eins árs gamall og sér mjög lítið á honum. Þetta er hinn fullkomni gítar fyrir hármetal rokkarann sem aðhyllist goð eins og Dime og Zakk. Með gítarnum fylgir giggbag og hef ég í huga að selja gítarinn fyrir einungis tæpar 45þ krónur.
Þeir sem hafa áhuga á skiptum þá hef ég áhuga á því að skipta út gítarnum fyrir alls kyns búnað og græjur. Heitastur er ég fyrir Fender (eða Squier) gíturum og roland gítar kerfum. Ef einhver þarna úti á einnig pod sem að hann vill skipta út hef ég líka áhuga á því.

Áhugasamir hafi samband við mig í gegnum huga mail.

Rokk og Ról!