Er að selja Gibson Les Paul Standard. Þetta er 1999 árgerð og keyptur árið 2000 í Rín. Þessi gítar er sama og ekkert notaður, mjög vel með farinn. Þessi gítar er sunburst, þegar ég keypti hann reyndi ég eins og ég gat að fá eins gítar og Jimi Page spilaði mest með, sama lit og týpu, einnig held ég að Slash í Guns ´n Roses hafi verið með nákvæmlega svona lit og týpu.

Ástæðan fyrir því að ég er að selja er að ég er að fara erlendis og sárvantar pening. Ég á örugglega eftir að sjá eftir gripnum en mig vantar pening fyrir 1. Júní næstkomandi.

Ef maður kaupir svona gítar nýjan í Rín kostar hann 260.000.

Ég er að vonast eftir 180.000 en sætti mig við 170.000. Tek hæsta boði.

Verður að seljast sem fyrst. Staðgreitt og tek ekkert uppí.