sá í dv í dag frétt þess efnis að hljóðfærum fyrir um 500.000 kr hafi verið stolið úr æfingahúsnæði á ártúnshöfða. veit einhver e-h um þetta, hvaða æfingahúsnæði þetta var og hvaða hljómsveit? það getur fátt verið eins ömurlegt eins og að græjunum manns sé stolið. því væri gott að fá lýsingu á þessum hljóðfærum og láta þau berast á milli, setja upp hér og í öðrum æfingahúsnæðum. reykjavík er lítil borg og þetta ætti að finnast ef rétt er farið að leitinni. stöndum saman!