Ég ætla að hljóðeinangra hluta af timburskúr sem stendur í íbúðahverfi. Ég þarf að setja upp einn millivegg og hljóðeinangra allt vel til að hægt sé að blasta rokki á útopnu án þess að pirra nágrannana. Þessvegna spyr ég ykkur reynsluboltana:

Hvernig er best að hljóðeinangra æfingahúsnæði?

Ég þarf að hugsa um gæði en líka peninga. Þetta má ekki vera alltof dýrt.