Ég hef spilað á 5-strengja bassa í um það bil tvö og hálft ár og vil fara að færa út í kvíarnar. Núna er ég að leita mér að sex-strengja apparötum og hef aðeins fundið einn niður í hljóðfærahúsinu. Sá bassi er Yamaha týpa og gerð eftir bassa sem bassaleikari Dream Theater, John Myung spilar á. Ég hef spilað á Yamaha bassa allan mína tíð sem bassaleikari og er orðin frekar leiður á því, þannig að ég spyr ykkur hvort þið vitið um einhverjar hljóðfæra búðir sem selja sex-strengja bassa, fyrir utan hljóðfærahúsið.