Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver gæti veitt mér smá ráðleggingar varðandi kaup á bassa effectum.

Ég á <b>Ibanez GSR200</b> bassa og er bara búinn að vera að spila á hann beint í gegnum mixer, núna er ég að spá í að fara að kaupa mér effect fyrir hann en veit bara ekkert hvaða effect. Núna er ég heitastur fyrir <b>Digitech XBC</b>, <b>Digitech XBD</b> og <b>Digitech XBS</b> sem eru allt svona stakir Digitech pedalar.

En svo er ég líka búinn að vera að skoða <b>Digitech BP200</b> multieffect sem er búinn að vera að fá fína dóma.

Þetta er stór spurning, endilega ef þið þekkið eitthvað til þessara effecta látið mig vita.