Hefur þig alltaf langað til að spila á gítar?
Geta gripið í hann á mannamótum og haldið uppi fjörinu?
Er með byrjendanámskeið fyrir alla aldurshópa, haldin
í Reykjavík!

Námskeiðin eru ætluð byrjendum og eru tvenns konar.

Annars vegar 8 vikna námskeið þar sem kennd verða helstu grip og stuðst við bók
sem inniheldur fjölbreytt lög þar sem flestir ættu að finna eitthvað sem þeim líkar.
Á þessu námskeiði er fólki kennd undirstöðuatriði í gítarleik og fólki kennt að redda
sér sjálft í frekara sjálfsnámi. Að sjálfsögðu getur fólk fengið fleiri tíma ef
áhugi liggur fyrir frekara námi.

Hinsvegar er ég með einstaklingsmiðuð námskeið þar sem hver einstaklingur er
metinn á fjögurra vikna fresti og æfingar miðaðar við getu nemanda, því engir
tveir einstaklingar læra á sama hraða.

Undirstaða þessara tveggja námskeiða er nokkurnvegin sú sama, nema það að á 8
vikna námskeiðinu er mun hraðara farið yfir efnið og meiri heimavinna nauðsynleg.
Ekkert mál er að flétta þessum námskeiðum saman.

Ef þið hafið áhuga á að læra á gítar á ykkar eigin hraða, í einkatímum eða tveir saman, endilega hringið í mig!

Kær kveðja,

Guðmundur S.
697-6699
<br><br><b>ÞETTA!</b> er undirskrift!