Vantar öflugan gítarmagnara, 100-150W. Margt kemur til greina en helst lampi og helst hedd+speaker. Á Marshall Valvestate Stereo Chorus magnara, 2X40W sem kemur vel til greina að setja upp í. Nýhreinsaður og fínn.

Einnig vantar hljómsveitina mína gítarleikara til þess að taka við stöðu minni í júlí og hugsanlega fram í ágúst vegna feðraorlofs. Sveitin er vel tækjum búin, með öflugt hljóðkerfi og stefnir ótrauð á mikla spilamennsku í sumar þannig að það gætu verið peningar í spilinu. Athugið að eingöngu er um tímabundið starf að ræða. Þið getið kíkt á vefsíðu sveitarinnar <a href="http://www.hi.is/~tmg">hér</a>.