Ég ætla að reyna einu sinni enn að auglýsa eftir trommara. Hljómsveitin heitir Diagon og þið getið fundið efni með henni á rokk.is. Okkur sárvantar trommara með langtíma markmið í huga. Okkur er að bjóðast að spila á tónleikum með Brain Police en við verðum að afþakka vegna trommaraleysis. En trommarinn sjálfur verður að vera nokkuð góður og svona á aldrinum 17-23 ára. Við erum tveir og erum 19 ára. Sendið mér skilaboð ef þið hafið áhuga.