Ég hef verið að velta því fyrir mér að taka gamla drasl gítarinn minn og laga hann þannig að hann verði barasta ágætur. Í kvöld þá tók ég hann í sundur og þá datt mér í hug að mála hann í nýjum lit. Ég var að velta því fyrir mér hvort að einhver vissi hvaða málningu væri best að nota og hverju ég ætti að varast við málun.

p.s. veit einhver hvort að það selji einhver hljóðfæraverslun bönd í gítar?

Með fyrirfram þökk<br><br>Lifi funk-listinn
Lifi funk-listinn