Jæja ég hef alltaf verið mikill djassáhugamaður og alltaf sem hlustandi en ekki þáttakandi. En nýverið greip mig mikil og sterk tilfinning sem sagði að ég yrði að kaupa mér trompet og spila á hann, þannig að það mun ég gera á næstunni, en spurning mín er sú, til að gerast mellufær á þetta hljóðfæri, hvað þarf maður að gera, án mikillar fyrirhafnar og aðstoðar annarra. Ég er ekki að fara að gerast mikill tónlistarmaður og langar ekki í tónlistarskóla, en hver er besta leiðin til að læra undirstöðurnar?<br><br>“Thought Begets Heresy, Heresy Begets Retribution”