Þetta er eitthvað fyrir alla sem eru að spila á hljóðfæri (ég held að þú getir meira að segja lært á þverflautu eða einhvern andskotann með þessu). Á síðunni www.mysongbook.com er hægt að dl forriti sem heitir guitarpro 4 ef þú gerir það getur þú náð í lög á síðunni Mysongbook. Þarna eru alls konar lög og læti og það er hægt að gera heilan helling í þessi forriti t.d. láta spila lagið fyrir þig, ræður hvað lagið er spilað hratt og margt fleira. Þetta er fyrir öll hljóðfæri og mjög einfalt ef þú kannt að lesa tabs eða nótur. Ég mæli eindregið með þessu því þetta er mjög fljótleg og góð leið til að læra lög.