Góðan daginn..

ég veit að þetta er langsótt en þetta er hálfgert neyðarúrræði fyrir mig..

Ég er 19 ára gamall hryllilega einmana bassaleikari sem á allar græjur (magnara 350w og auðvitað bassa). Mig vantar einhvern skemmtilegan félagsskap.

Ég er búinn að vera að spila í 2 ár eða um það bil það og hef nokkra reynslu. Ég er búinn að vera að læra í samtals svona 1/2 ár og er að læra í FÍH í augnablikinu.

Ég spila nánast hvað sem er nema gruggrokk eða eitthvað því um líkt. Ég hef mest gaman af öllu sem groovar almennilega.. funk, eða þ.h. en er samt algjör rokkari og þá mest pönkari eða svoleiðis..

Ef þú ert í einhverju áhugaverðu bandi sem vantar bassaleikara, endilega vertu í bandi (sentu bara skilaboð hér á huga til mín..)

Takk..