Ég er 17 að verða 18 og hef verið að leika mér oggulítið að spila á trommur og fékk þá flugu í höfuðið að vilja kaupa eitt stykki trommusett. Þar sem ég kann ekki mjög mikið á trommur en mig langar að læra sjálfur, svona hvernig maður á lesa töb og svoleiðis, þá væri frábært ef einhver væri til í að segja mér hvar hugsanlega ég á að byrja. En svo er það aftur á móti trommusettið sem ég á að kaupa, hvernig sett hentar mér vel og getur komið sér vel að eiga ?