sælir landar. Svoleiðis er nú það að ég er 17 ára gamall Njarðvíkingur og spila á gítar. Ég hef mjög mikinn áhuga á country tónlist og langar þessvegna að stofna hljómsveit sem spilar þannig tegund af tónlist, semsagt country tónlist. Þá er ég að tala um aðallega svona línudans lög og margt fleira sem ætti að koma flestum í rétta partý stuðið. Ef einhver hefur áhuga á þessu þá má hann alveg endilega segja mér frá því því að þetta gæti orðið alveg magnað.

Kveðja, Haffi.