Já, ég ætla sum sé að fara að láta gamlan draum rætast og fá mér gítar, og er helst að spá í kassagítar. Hef aðeins verið að tékka á þessu, verðum og merkjum og þannig og þá helst á netinu, og verð ég að segja að flestar gítarbúðir höfuðborgar-svæðisins meigi alveg taka sig á í heimasíðumálum. En allavega mig langar rosalegaað vita hvaða merki eru garanteruð gæði og hvað séu góð kaup miðað við verð… og hvort Gítarinn sé rétta verslunin. Ef einhver nennir að svara þessu eftir bestu getu þá væri það frábært.

fyrirfram takk, Bruce