Ég ákvað að setja þetta sem grein þar sem það vantar greinar hér og það sjá þetta fleiri. Ég var að spá með forrit til upptöku. Málið er að mig vantar sæmilegt forrit fyrir PC þar sem ég get tekið upp lög inná og hlustað á þau á sama tíma og ég tek upp á aðra rás (fyrir aukna dýpt í lögin mín). Plís ekki gefa mér upp eitthvað á borð við Cubase sem ég held að sé bara fyrir Makkann og kostar um hálfa milljón! Mig vantar eitthvað ódýrt sem dugar. Ég er það mikill nirfill að ég hef notað sound recorder í sameiningu við e-jay forrit hingað til en það virkar ekki sem skyldi:)

PS. I really need this